Fagmennska frá gólfi upp í loft

Pons er alhliða verktakafyrirtæki sem sérhæfir sig í gólfefnum, veggjaklæðningum og loftalausnum fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka.

Hjá Pons starfa yfir 30 manns, þar á meðal menntaðir dúklagningamenn, smiðir og nemar. Öflugt teymi og fjölbreytt reynsla gera okkur kleift að takast á við verkefni af öllum stærðum – allt frá smærri framkvæmdum og endurbótum upp í stór verkefni og nýbyggingar.

Auk hefðbundinna gólf- og veggjaklæðninga hefur Pons sérhæft sig í loftadúkum, nútímalegri lausn við frágang lofta sem býður upp á fjölbreytta möguleika í hönnun, lýsingu og hljóðvist.

Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, vandaðan frágang og góða þjónustu – frá fyrstu ráðgjöf til fullfrágengins verks.

GÓLF

VEGGIR

LOFT