CLAMP CEILING

SKUGGAFÚGA MEÐFRAM VEGGJUM - NÚTÍMALEG LAUSN FYRIR LOFTAFRÁGANG

Clamp Ceiling

Clamp Ceiling er notaður þar sem ekki er hægt eða ráðlegt að festa listann í vegg. Þetta á til dæmis við um gler, postulínsflísar, brautir fyrir rennihurðir fataskápa, þunna veggi eða veggi með raflögnum.

  • Listinn er festur í loft og hentar því vel þar sem forðast þarf festingar í aðliggjandi veggi.

  • Auðveld uppsetning á bæði textíl og PVC loftadúkum.

  • Örugg festing og gott grip á dúknum.

  • Hægt að setja upp með lágmarksniðurtekt frá burðarlofti.

  • Hentugt innsetningarhorn auðveldar ísetningu dúksins.

  • Rúmgott festihólf með góðu plássi fyrir umframdúk.

  • Myndar 8 mm skuggafúgu milli dúks og veggjar og skapar þannig jafnar og skýrar útlínur loftsins.

LOFTALISTI SEM ER FESTUR Í LOFT

Clamp Ceiling er loftalisti sem myndar skuggafúgu umhverfis loftið. Hann skapar jafna, dökka útlínu meðfram veggjum.

Efni: Ál

Lengd: 2 m

Litur: Svartur eða hvítur

Notkun: Loftadúkur með skuggafúgu meðfram veggjum

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um þennan lista eða fá tilboð þá endilega fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband.