LJÓSAFESTINGAR
SÉRSMÍÐAÐ AF PONS · LASERSKORIÐ ÚR 4 MM MDF
Hannað fyrir rafvirkja
Festingarnar eru laserskornar úr 4 mm MDF og hannaðar til að þola mikið álag. Þær eru sterkbyggðar og auðvelda að taka ljós úr eftir að dúkur hefur verið strekktur.
Ljósafestingarnar okkar henta fyrir fjölbreyttar gerðir ljósa og eru hannaðar með þarfir rafvirkja að leiðarljósi:
Rúmgóð skúffa: Nægilegt pláss er fyrir spenni ljóssins.
Lokaðar allan hringinn: Festingarnar henta jafnt í hallandi og slétt loft.
Göt fyrir rafmagnsbarka: Göt í efri hluta festingarinnar auðvelda aðgengi og hjálpa til við að halda snúrum og börkum á sínum stað svo þau liggi ekki ofan á dúknum.
Sérsmíðaðar festingar fyrir ljós og reykskynjara
Hjá Pons framleiðum við festingar fyrir innfelld ljós og reykskynjara, ásamt festingum með innfelldri dós fyrir hangandi ljós eða tengidós.
Við sérsmíðum allar festingar eftir málum viðskiptavina, bæði fyrir eigin verkefni og fyrir aðra uppsetningaraðila og rafvirkja.
Efni: 4 mm MDF
Fyrir: Innfelld ljós, reykskynjara og hangandi ljós
Innra þvermál: 55 til 100 mm eða eftir máli
Engin greiðsla: Við staðfestum verð og afhendingu með tölvupósti.
Hringja: 698 8041