RADIUM MINI

RAMMALAUST LOFT - SKUGGAFÚGA MEÐ LÝSINGU MEÐFRAM VEGGJUM

Radium Mini

Mælt er með því að nota Radium Mini þar sem eru sléttir veggir og engin yfirborðsáferð.

Listinn er festur við veggi eða við burðarloft með vinkilfestingum.

  • Við festingu í burðarloft er engin hætta á að skemma raflagnir inni í veggjum.

  • Myndar 3,5 cm bil milli lofts og veggjar.

  • PVC ljósdreifari yfir LED borðanum gefur mjúka og jafna lýsingu, einnig meðfram veggjum með endurkastandi yfirborði.

  • Auðveld ísetning og örugg festing fyrir allar gerðir textíldúka.

  • Hentugt innsetningarhorn auðveldar ísetningu dúksins.

  • Rúmgott festihólf með góðu plássi fyrir umframdúk.

LOFT SEM VIRÐIST SVÍFA FRÁ VEGGJUNUM

Með Radium Mini verður eins og loftið sé svífandi þar sem loftflöturinn er aðskilinn frá veggjunum og virðist svífa í lausu lofti. Meðfram veggjum myndast 3,5 cm skuggafúga.

Í hlið listans er svo rás fyrir LED borða sem er svo hulin með PVC ljósdreifara sem gefur mýkri og jafnari lýsingu.

Efni: Ál

Lengd: 2 m

Litur: Svartur eða hvítur

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um þennan lista eða fá tilboð þá endilega fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband.