CLAMP LEVEL 50, 70 OG 90
HÆÐARSKIPTING Í LOFTI - 3 MISMUNANDI VALKOSTIR
Kostir Clamp Level
Level listinn hentar til að mynda hæðarskiptingar í lofti og innskot fyrir LED eða gardínubrautir og því ekki lengur þörf á að smíða LED/gardínu kappa úr timbri/MDF.
Listinn er festur við burðarloft með vinkilfestingum og hægt að staðsetja í hvaða fjarlægð sem er frá vegg.
Sýnilegur lóðréttur flötur hæðarskiptingarinnar fæst svartur eða hvítur.
Dúkurinn myndar skörp innhorn við 90° horn.
Hentar bæði fyrir beinar og sveigðar útfærslur. Saga þarf raufar í listann til að sveigja hann.
Hægt að tengja við Umbra, Radium og Radium Mini lista.
Auðveld ísetning og örugg festing fyrir allar gerðir textíldúka.
Hentugt innsetningarhorn auðveldar ísetningu dúksins.
Rúmgott festihólf með góðu plássi fyrir umframdúk.
LISTI FYRIR 50, 70 EÐA 90 MM HÆÐARSKIPTINGU
Þessi listi hentar þar sem loft er tekið niður um 50, 70 eða 90mm.
Sýnilegur lóðréttur flötur listans er svartur eða hvítur. Hægt er að bæta við Clamp Top lista í þeim tilfellum þar sem loft er „stallað“ og loftadúkur í báðum loftum.
Efni: Ál
Lengd: 2 m
Litur: Svartur eða hvítur
Notkun: Hæðarskipting í lofti
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um þennan lista eða fá tilboð þá endilega fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband.