LOFTADÚKAR
AF HVERJU LOFTADÚKUR?
Betri hljóðvist – betri líðan
Við höfum öll upplifað að vera í rými þar sem hljóðvistin er slæm. Hávaði, bergmál og stöðugt hljóðáreiti geta haft veruleg áhrif á líðan, einbeitingu og upplifun fólks af rýminu. Góð hljóðvist snýst því ekki eingöngu um þægindi – hún getur skipt miklu máli fyrir vellíðan og notagildi rýmisins.
Frá árinu 2016 hefur Pons aðstoðað einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir við að bæta hljóðvist með hljóðdempandi loftadúkum. Sú reynsla hefur gert okkur að einu reynslumesta fyrirtæki landsins þegar kemur að ráðgjöf og uppsetningu loftadúka.
Hljóðvist sem verður hluti af hönnuninni
Loftadúkar opna nýja möguleika í hönnun lofta þar sem hægt er að sameina góða hljóðvist, lýsingu og fallegt yfirbragð í einni heildstæðri lausn.
Uppsetning loftadúka er einföld og fljótleg og veldur lágmarksraski í rýminu. Við uppsetningu myndast hvorki ryk né lyktarmengun, sem gerir lausnina sérstaklega hentuga bæði í nýbyggingum og þegar bæta á hljóðvist í húsnæði sem þegar er í notkun.
Við hjá Pons vinnum með loftadúka frá franska framleiðandanum Clipso. Dúkarnir eru vandaðir, endingargóðir og með myglu- og bakteríudrepandi eiginleika.
Góð hljóðvist þarf ekki að sjást – en munurinn finnst strax.
ENDALAUSIR MÖGULEIKAR
Mörg halda í fyrstu að loftadúkar leiði til takmarkana varðandi lýsingu o.fl. en því fer fjarri. Við getum sniðið lausnirnar okkar í kringum nánast hvað sem er, hvort sem það eru loftskiptikerfi, hljóðkerfi eða innfelld lýsing - möguleikarnir eru endalausir.
Innfelld lýsing: Innfelld ljós er eitthvað sem fylgir nánast öllum uppsetningum á loftadúk. Fyrir hvert og eitt ljós er sett upp svokallað ljósabrakket sem eru smíðuð úr MDF. Öll brakket eru sérsmíðuð af Pons fyrir sérhvert verkefni og miðast mál þeirra við gatastærð á ljósunum sem fólk velur sér.
Innfelldar kastarabrautir: Oft vill fólk hafa kastarabrautir í loftinu hjá sér og þá er bæði hægt að hafa þær utaná dúknum eða fella brautirnar inní hann.
Hljóðkerfi: Sífellt fleiri velja að setja hátalara á bakvið dúkinn og aðstoðum við fólk með smíði á sérstökum boxum undir þá, auk þess að koma hátölurunum fyrir í loftinu.
Óbein LED lýsing: Margir vilja hafa óbeina LED lýsingu meðfram veggjum og við getum aðstoðað okkar viðskiptavini með það.
Ósýnilegar gardínur/brautir: Sífellt fleiri óska eftir um lausnum fyrir ósýnilegar gardínur/brautir. Við getum útfært lausnir fyrir nánast hvaða verkefni sem er.
EINFALT UPPSETNINGARFERLI
Ferlinu á bakvið uppsetningu á loftadúk má í rauninni skipta upp í fjóra hluta:
Timburrammi er settur hringinn í kringum allt rýmið og sérstakur plastlisti neðan á þennan ramma, sem dúkurinn er síðar strekktur í.
Einangrun (ull) er svo sett í loftið á bakvið dúkinn, en þannig náum við fram hljóðvistar eiginleikanum.
Ljósabrakketum komið fyrir á sína staði og þau stillt af í rétta hæð.
Dúkurinn strekktur
ÓKEYPIS MÆLINGAR OG TILBOÐSGERÐ
Ef þú vilt fá ókeypis mælingar og tilboð þá getur þú smellt á hnappinn hér að neðan eða sent okkur línu á pons@pons.is.