MEDUZA 14 OG 35
LJÓSLÍNA OG DEILILISTI - 14 EÐA 35 mm SKUGGALÍNA
Deililisti með skuggafúgu
Listinn myndar 14 eða 35 mm breiða og 23 mm djúpa skuggafúgu milli dúkanna. Listinn býður upp á fjölbreytta hönnun á loftinu og gerir það mögulegt að skipta stórum fleti í afmörkuð svæði. Listinn hentar þar sem ekki er hægt að klæða loftið með einum samfelldum dúk, auk þess að nýtast til að skapa mynstur og skiptingar í lofti.
Listinn hentar fyrir PVC loftadúka og allar gerðir textíldúka, bæði fyrir almenna lýsingu og skrautlýsingu.
Hægt er að nota LED borða með mismunandi afli.
Listinn er festur við burðarloft með vinkilfestingum. Lágmarksniðurtekt frá burðarlofti að loftadúk er 3,5 cm.
Sameinar deililista með skuggafúgu og ljóslínu í einni lausn.
Gefur loftinu sérstakt útlit.
Auðveld ísetning og örugg festing fyrir allar gerðir loftadúka.
Hentugt innsetningarhorn auðveldar ísetningu dúksins.
Rúmgott festihólf með góðu plássi fyrir umframdúk.
ÁLLISTI MEÐ INNFELLDRI FÚGU
Meduza listinn myndar 14 eða 35 mm breiða fúgu sem er innbyggð í listann.
Hægt að setja lýsingu inní fúguna eða nota í stað samskeytalista og fá þannig skýrari form á skiptingu á loftinu.
Efni: Ál Lengd: 2 m Litur: Svartur Notkun: Innfelld LED ljósalína eða í stað samskeytalista Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um þennan lista eða fá tilboð þá endilega fylltu út formið hér að neðan og við höfum samband.