DÚKALÖGN

Pons var upphaflega stofnað til að sinna dúklagninga verkefnum og býr fyrirtækið að gríðarlegri reynslu af dúkalagningum. Dúkar hafa verið mjög vinsælt gólfefni í rýmum þar sem ágangur er mikill eins og í skólum, leikskólum og öðrum stærri vinnustöðum, enda mjög slitsterkt efni. 

Þróunin hefur verið mikil seinustu ár og hafa bæst við svokölluð vínylparket og vínylflísar. Starfsfólk okkar veitir ráðgjöf við val á efni sé þess óskað. Hér að neðan má sjá myndir af nokkrum verkefnum sem fyrirtækið hefur unnið að.